6. febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var á þessum degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín, eða fyrir sléttum 70 árum.
Í ár er Degi leikskólans fagnað í 13. skiptið með formlegum hætti í leikskólum um land allt.
Til hamingju með daginn okkar!